
Um mig: Ég er 6 ára strákur og er í 1. bekk í Breiðagerðisskóla. Yfirleitt er ég hress og kátur og finnst ofsalega gaman að leika mér, og þá sérstaklega með bílana mína. Mér finnst líka skemmtilegt að hjóla. Ég fæddist þann 2. ágúst 1999, á frídegi verslunarmanna. Þegar ég kom í heiminn var ég hvorki meira né minna en 4530 grömm og 53 cm! Pabbi minn heitir Sæmundur Sæmundsson og vinnur hjá Marel í Garðabænum og mamma heitir Erna Bjargey Jóhannsdóttir og er í Háskólanum að læra hjúkrunarfræði. |